EIGINLEIKAR: Frábært kerfi til að hreinsa vatnið 100% áður en það fer inná háþrýstidæluna. Á kerfinu er hjáveituloki sem gefur val um að nota filterana allan þvottatímann eða til að skola af í lok þvottar. Á kerfinu er stafrænn TDS mælir sem sýnir hreinleika vatnsins bæði fyrir framan loka og aftan. 1 de-ionize hylki filterar um 1200 ltr. eitt og sér. Þessi mæling miðar við að agnir í vatninu séu 100 eða lægri. Þegar við bætist carbon filterinn þá aukast afköstin um 20% (1440 ltr.). Miðað við að kerfið sé notað við lokaskolun þá dugar sett af filterum í á milli 80-96 þvotta. Með filteruðu vatni þá fæst einnig meiri froða úr froðubyssunni, hver vill ekki mikla og þykka froðu?
| Brand | Hikvision |
|---|


